Main menu:

Site search

Categories

February 2010
M T W T F S S
« Aug    
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728

Archive

Hátt til lofts og vítt til veggja.

Þannig er það í nýja húsinu okkar sko. Það er ekki amalegt að hafa pláss og svoleiðis hefur það verið hingað til. En núna fáum við pláss “uppávið”. Það er hvílík lofthæð í húsinu okkar að ég þarf 3-faldan stiga til að skipa um ljósaperu!

Annars er allt búið að vera á fullu gjörsamlega við að halda hjólunum gangandi. Húsið var málað að mestu leiti að innan og ýmislegt smálegt lagfært. Engir stórir gallar komið í ljós og allir bara sáttir. 

Ég hóf störf 1.ágúst of hef unnið eins og kleppari síðan. Tók að mér að útsetja 4 lög á plötu með Björgu Þórhalls og stjórna í upptökum og hefur sú vinna tekið sinn toll.

Unnur Vala orðin stærri og er farin að sofa hjá dagmömmunni, yndislegri stúlku sem heitir Íris Dögg. Hún býr rétt hjá vinnu minni og verðum við Unnur því samferða á morgnana.

Ásgrími Ara gengur rosa vel í skólanum. Hann ætlar að hjálpa pabba sínum í hljómsveitinni og bara að læra á túbu og rafmagnsbassa. Það bjargar hljómsveitinni, takk fyrir það Ásgrímur.

Jón Arnar orðinn áhugasamur í fótboltanum en heldur áfram á básúnuna í Skólhljómsveit Grafarvogs.

 Halldóra hefur vinnu eftir sumarfrí/fæðingarorlof fyrsta mánudaginn í september. 40% á Kleppi/ 60% við rannsóknir í Norge.

 Allt gott og mikið gott að vera kominn í faðm fjölskyldunnar sinnar. Ekki meira að sinni.

p.s. Einar búinn að kaupa árskort í Sunlaugarnar, jibbí

SELT

Húsið sko.

Jamm, gerðist loks í dag, erum voða fegin að það gekk áður en við komum heim, en fengum þó minna en við vonuðumst til í upphafi. Tilfinningarnar eru þó blandaðar!! Hér hefur okkur liðið vel, notið þess að hafa gott pláss, stóran og fínan garð, útsýni og ekki síst marga góða gesti og oft marga samtímis, snökt.

2007-5-015.jpg

Seldum sjónvarpssófann í gær og eyddum andvirði hans í dag, erum löngu búin að eyða andvirði hússins!! Píanóið er líka til sölu og bíllinn. Trambólínið er líklega að fara á sölu. það er ekki mikil ánægja með það, en eftir miklar spekulasjónir sýnist okkur ótrúlegt að það komist með góðu móti í garðinn við nýja húsið, ömmur og afar hafa ekki garð eða ekki nógur stóran og það er bara ekki  um annað að ræða, því miður.

Annars er stærð gáms aðalhöfuðverkurinn eins og er. Ekki svo auðvelt að koma stórum gámi í innkeyrsluna eða hér í kring. Verður líklega minni gerðin og erum farin að ræða hvað má skilja eftir ef hann fyllist upp í topp…….

Það er pappakassaþefur í húsi mínu!!

Enda húsið fullt af pappakössum og við komin í flutningsgírinn. Okkur var snarlega hrint í hann um helgina þegar tvær ömmur gerðu innrás og ruddu leirtaui úr skápum, bókum úr hillum og drasli úr geymslum, auk þess sem þær rifu niður gardínur og gardínustangir og tíndu myndir af veggjum………………….

Öllu pakkað snyrtilega í bóluplast, bylgjupappír og svo pappakassa sem kyrfilega er límt fyrir. Það verða jólin að pakka þessu upp aftur!!

Geri aðrir betur. Það er ljóst að þær eru æstar í að fá okkur heim.

Við komum heim 23. júlí og fáum húsið 25. júlí. Það er öllum velkomið að koma og kíkja á okkur í Garðhúsum 28 frá þeim degi. Takið gjarnan með málningarpensill eða rúllu og ekki er verra ef þið bjóðist til að nota málingargræjurnar þarna um leið. Við sköffum málningu!! Okkar penslar og rúllur verða um borð í fraktskipi ásamt öðrum eigum okkar sem væntanlegar eru til landsins ca 1. ágúst.

Bara einn kafla enn, svo ferðu að sofa……………..

Þetta fékk hann Jónsi minn að heyra í fyrsta sinn fyrir viku síðan, loksins. Hann var svona ægilega ánægður með þetta, drengurinn, nefnilega að vera orðinn lestrarhestur. Hefur aldrei tollað mikið við lestur, en gekk vel að læra að lesa. Við héldum að hann væri bara of órólegur til að geta einbeitt sér að lestri, en hann sér of illa til að geta það. Kominn með lesgleraugu og að springa úr ánægju með þetta. Las hálfa bók daginn sem hann fékk gleraugun og kláraði hana daginn eftir, svona 75 síður!! Jibbbíí Jónsi minn…………………

Bræðurnir fóru hvor á sitt námskeiðið vikuna eftir skólalok. Ásgrímur á golfnámskeið og Jónsi í fótboltaskóla með hálfum bekknum. Veðrið hélst gott, en svo byrjaði að rigna og hefur verið heldur dapurlegt sumarveður síðustu vikuna!!

Unnur Vala fékk hlaupabólu sem frænkur hennar tvær færðu henni frá Íslandi, ég held að það sé ekki hægt að fá hana hér, svo það var betra að flytja hana inn!! Var bara soldið slöpp og þreytt, en er öll að koma til og sárin að gróa.

Allt tekur enda í sumar og sól

Núna um helgina var fyrsta helgin í óratíma þar sem ekkert sérstakt var planað hjá okkur. Engir tónleikar, ferðalög, fótboltamót, flóamarkaðir eða annað……………………

Eða næstum ekkert. Það var sýning á húsinu í n-ta sinn, svo laugardagsmorgunn fór í tiltenkt og þrif og Ásgrími var boðið í eitt stykki þrefalt afmæli.

Svo við nutum mest veðursins!! Hér hefur semsé verið hitabylgja í u.þ.b. 10 daga og mælirinn hefur skriðið uppfyrir 30 gráðurnar. Það er stöðugt heitt, inni og úti og ungabarnið fer hvorki í nátt- né dagföt, er bara á samfellunni.

2007-6-7-10-022.jpg
Fórum í yndislegt matarboð hjá vinum okkar á laugardagskvöldið og sátum úti og borðuðum sjómat og drukkum hvítvín fram á nótt. Á sunnudaginn skelltum við okkur á ströndina og flatmöguðum þar þangað til Einar gafst upp á aðgerðaleysinu og Ásgrímur slasaði sig á ilinni (ýmsir skarpir kantar í sjónum). Gerður og Óskar vinir okkar voru með ásamt Þórbergi og Ásthildi sem er aðeins eldri en Unnur Vala. Þær sátu saman og léku sér hlið við hlið, bröltu og sprelluðu, báðar með gula sólhatta. Komum svo heim og grilluðum kjúlla og Jónsi og Þórbergur bleyttu aftur vel í sér með garðúðarann undir trambólíninu!!

Annars er allt að enda þessa dagana……………..Sommeravslutning hjá Jónsa bekk í dag og hann er kynnir, ákaflega stoltur. Kom heim einn daginn í síðustu viku að springa úr gleði yfir því að vera beðinn að gegna þessu mikilvæga hlutverki og yfir árangri sínum á íþróttadeginum hjá yngstu bekkjunum. Hann hoppar alltaf hærra og hleypur hraðar blessaður. Eftir sommeravslutning í skólanum í dag eru svo sumartónleikar í tónlistarskólanum og á morgun er sommeravslutning hjá lúðrasveitinni.

Allt er líka að klárast hjá Einari, en í dag var hann reyndar að spila fyrir kónginn………………………………..

Jepp, ekki seinna vænna að drífa í því svona rétt fyrir heimflutningana. Annars endar hans starf sem stjórnandi lúðrasveitarinnar Ringerike Janitsjar og sem stjórnandi Ískórsins mjög skemmtilega!! Þann 17. júní kemur lúðrasveitin og spilar í skrúðgöngu Íslendinga og Ískórinn syngur líka. Og þá er það búið……

Erum búin að kaupa flugmiða heim. aðra leiðina. Komum að kvöldi 23. júlí.

Ekkert

að gerast með húsið!!

Allt dautt, ekki bara hjá okkur, heldur almennt í kringum okkur. Það er fullt af fólki að reyna að selja, en ekkert gerist. Það datt bara allt niður og engar skýringar. Það var allt vitlaust fyrir bara 2-3 mánuðum, mikil eftirspurn og sala. Við barasta skiljum ekkert í þessu………………….

Annars er margt að gerast!!

Klukkan er 22 og hitastigið 21 gráða C

Aftur spáð 27 stigum í Ósló á morgun, en 9 stigum í Reykjavík.

Ásgrímur spilaði á blokkflautu og dansaði á sumarlokaskemmtun í dag og svo sátum við á skólalóðinni í skugganum.

Unnur Vala er rétt 7 mánaða og hún skríður og stendur upp í rúminu og í vagninum. Er að verða hinn mesti skæruliði og ekki seinna vænna að fara að grafa upp allan mögulegan öryggisútbúnað fyrir litla óvita.

Jón Arnar er með stórt glóðarauga.

Bræðurnir eru báðir brúnir og sælllegir en þurfa að fara í klippingu, líka Einar, en ekki  Unnur Vala.

Á morgun er föstudagur, aftur sýning um helgina og hér þarf að taka til…………..ekstra vel.

Sjáumst eftir minna en 7 vikur, Ísland

Að duga í dugnað

Að vera foreldri hér í Norge felur í sér að maður þarf að mæta í ýmsan dugnað og vera virkur í tómstundastarfi barna sinna og fleiru í kringum skóla og leikskóla. Ég var t.d. dómari í fótboltaleik í gær……………….. Trúi því hver sem vill.

Um helgina var flóamarkaður lúðrasveitarinnar sem strákarnir spila í og það var full vinna fyrir annað okkar alla helgina. Þetta var sjötti og síðasti markaðurinn sem við erum með í.

OG

Hæ hó og jobbí jæ, það er að koma 17. maí!!

2005-17-mai-046.jpg
Jón Arnar ásamt bekkjarfélögum í skrúðgöngu 2005

Eigi maður barn í 5. bekk er maður sem foreldri sjálfskipaður í framkvæmdanefnd þjóðhátíðardagsins í sínu skólahverfi. Það er þá auðvitað blátt bann við því að vera að heiman á 17. maí. Þetta er meiriháttar framkvæmd og vinna allan daginn, auk undirbúningsvinnu. Við verðum í því að undirbúa veitingasölu, selja og hita pylsur ofl og auðvitað baka, tvær kökur takk. Reikna með að þessar skyldur minnki eitthvað þegar til Íslands kemur (verð varla sett í dómgæslu þar og man ekki til þess að sem foreldrar leikskólabarna höfum við þurft að mæta til að mála leikskólann eða laga til á lóðinni!!). Orðið dugnað finnst ekki einu sinni á íslenskri tungu. Mig grunar þó að Einar sjái fyrir sér að ég sem formaður foreldrafélags Skólahljómsveitar Grafarvogs drífi í einum risaflóamarkaði og hali þannig inn nokkrar millur í ferðasjóð (við erum búin að gera heimildarmynd um hvernig slíkur flóamarkaður fer fram). Þarf annars að fara að drífa mig á síðasta undirbúningsfundinn fyrir 17. maí………………………..

Til hamingju Einar!!

Hann er semsé búin að fá starf…………….

Á Íslandi þ.e.a.s.

Verður hljómsveitarstjóri skólahljómsveitar Grafarvogs frá og með 1. ágúst. 100 % starf á einum stað og í göngufjarlægð frá okkar nýja heimili í Garðhúsum. Hann var valinn úr hópi 6 umsækjenda.


Gleði, gleði gleði……………………………….

Könnunarleiðangur í Grafarvoginn

Komum heim aðra helgi…………… 11.-15. maí.

Við komum öll og ekki síst til að leyfa strákunum að heimsækja nýja skólann og sjá hverfið. Það hjálpar örugglega að þeir fái að sjá framan í krakkana í bekknum og krakkarnir framan í þá. Það er ýmislegt jákvætt við að flytja í Grafarvoginn eins og t.d. eru fleiri fótboltaæfingar (fyrir Jónsa), sundlaug rétt hjá og margt annað íþróttastarf (Ásgrímur er að hugsa um að prófa karate eða Taikwondu), það eru ekki brekkur eins og í Heggedal og því léttara að hjóla…………….

Mikið vona ég að eitthvað verði farið að grænka við sjáum smá sól!!

Að vaka dægrin löngu í sumar og sól

Búið að vera mikið stuð hér síðustu daga, en strákarnir fengu báðir að bjóða nokkrum vinum í næturgistingu. Aðfaranótt gærdagsins gistu 6 vinir Jónsa, hinir prúðustu piltar og fannst frábært að fá að gista. Gaurarnir voru allir sofnaðir fyrir miðnætti eftir hopp og sprell á trambólíninu, tölvuleiki og mynd. Það spillti ekki fyrir að hér hefur verið stuttbuxnaveður síðan fyrir helgi. Já, sumarið er satt að segja komið held ég bara, allt í blóma og fyrsti sólhattur Unnar Völu kemur í góðar þarfir. Þarf eiginlega að fjárfesta í öðrum barðastærri. Ásgríms vinir gistu á föstudaginn og vöktu fram eftir allri nóttu….

Við lærðum nýtt hugtak á norsku “å døgna” sem kannski væri hægt að þýða sem að dægra á ilhýra. En þetta þýðir semsé að vaka í sólarhring. Þeim tókst það þó ekki, þeir síðustu gáfust upp að verða 6 þegar ég komst að plottinu og var ekki sérlega kát með það……… Þeir voru heldur framlágir næsta dag og ég held að Ásgrímur minn hafi komist að því að það að vaka í heilan sólarhring er ekkert sérstakt (allavega ekki daginn eftir).
Þessi fína mynd af Unni Völu er tekin 15. apríl. Hún er annars orðinn 6 mánaða og ákaflega spræk. Hún er farin að syngja hástöfum og situr bísperrt og leikur sér. med-solhatt-150407.jpg